22 June 2009

A Day In L.A








Photographers Claudia Knoepfel & Stefan Indlekofer
Model Hanne Gaby Odiele
A Day in L.A.

Glingur


10 May 2009

Tískuvika í Ástralíu

Dagana 27. apríl til 1. maí stóð yfir tískuvikan Rosemount Australian Fashion Week í Sydney Ástralíu. Á síðunni styleshightings.com er hægt að sjá myndir sem teknar voru af fólki á götunni á meðan tískuvikan stóð yfir. Einnig segja þeir þetta um Ástrala: " While the fashion industry and community there is fairly small and close-knit, their passion for and commitment to fashion far exceeds other warm weather cities like Miami or Los Angeles. They are quite a bit more sophisticated in their fashion choices and knowledge than one might expect. I chalk this up to their British roots and to the cosmopolitan nature of Sydney today."






24 April 2009

Sessilee


Sessilee Lopez er, einsog maður segir, the-it-girl í dag. Hún er Afrísk-Amerískt módel og starfar fyrir umboðsskrifstofuna Major Model Management. Hún er tuttugu ára (fædd 4. janúar, 1989) og býr í New York í dag. Hún skrifar blogg (http://sessileelopez.blogspot.com/) þar sem hún birtir myndir af sér (sem eru í öllu frægustu tímaritum heims, einsog HARPER'S BAZAAR, VOGUE ofl.) Þessi myndasería af henni er úr VOGUE ITALIA.


21 April 2009

Topshop, ég elska þig

Ef ég ætti smá pening núna þá færi ég líklegast í Topshop og eyddi honum í nokkrar flíkur af nýju vörunum þeirra. Þær eru æði. Ég mátaði rósótta marglitaða kjólinn sem er á mynd hér að neðan, og hann er geðveikur. Því miður var hann ekki til í minni stærð en ég fann mér annan kjól frá þeim. Ég myndi kíkja á vörurnar í annaðhvort Topshop Kringlunni, Smáralind eða á www.topshop.com.









16 April 2009

Vogue Maí 2009

Þessar myndir eru teknar af David Sims og eru birtar í Vogue US May 2009






15 April 2009

Gallastuttbuxur








































Mig var búið að langa í gallastuttbuxur í langan tíma en ég hafði ekki séð neinar í búðunum. Ég fór því á kílóa markað Spútnik á Laugarveginum fyrir nokkrum vikum síðan og keypti þar gamlar notaðar Levi´s buxur. Ég klippti skálmarna af og bretti upp á endana á þeim og þar sem þær voru allt of stórar á mig, þá hanga þær skemmtilega á mjöðmunum og eru dáldið víðar og pokalegar, alveg einsog ég vildi þær.
Þegar ég fór í Kringluna í gær sá ég varla annað en gallastuttbuxur í öllum búðum sem ég fór í. Þær voru flottastar í Zöru og TopShop og voru nánast alveg eins og mínar, og kostuðu um 6 til 8 þúsund krónur. Ég held að margar stelpur verði í þessum stuttbuxum í sumar enda passa þær við allt og eru alltaf flottar. En hins vegar mæli ég með fyrir þær sem vilja spara pínu pening, að kaupa notaðar gallabuxur í vintage búðunum eða jafnvel kolaportinu og gera þetta heima sjálf. Þá getur maður ráðið síddinni sjálf og notað peninginn sem maður sparaði í eithvað annað skemmtilegt.

11 April 2009

Donna Karan skór






Ég var að skoða a/w 09 línuna frá Donna Karan og sá þessi skópör sem ég gæti alveg hugsað mér að eignast fyrir haustið.